Fara beint í efnið

1. nóvember 2022

Nýr forstöðumaður bókhaldsþjónustu HSN

Heilbrigðisstofnun Norðurlands hefur ráðið Jón Braga Gunnarsson í starf forstöðumanns bókhaldsþjónustu. Níu umsækjendur voru um stöðuna.

Jón Bragi

Jón Bragi er viðskiptafræðingur og hefur víðtæka reynslu af fjárumsýslu og bókhaldi sem og hefur hann stýrt innleiðingu á bæði fjárhagsupplýsinga- og bókhaldskerfum. Jón hefur m.a. starfað sem fjármála- og rekstrarstjóri hjá Verkval ehf, sérfræðingur hjá Ferðamálastofu og hjá Akureyrarbæ bæði sem hagsýslustjóri og verkefnastjóri á fjármálasviði.

Jón Bragi mun hefja störf 3. nóvember næstkomandi.

Við óskum Jóni Braga til hamingju með stöðuna og bjóðum hann velkominn til starfa.