Fara beint í efnið

18. maí 2026

Nýr Blóðbankabíll

Nýr Blóðbankabíll hefur litið dagsins ljós!

Nýr Blóðbankabíll hefur litið dagsins ljós.

Bíllinn er hannaður með sjálfbærni, sveigjanleika og aukið aðgengi að leiðarljósi. Hann nýtir meðal annars eigin raforku með sólarsellum og er því ekki háður rafmagnstengingu á söfnunarstað. Með þessu skapast auknir möguleikar til blóðsöfnunar víðs vegar um landið og þjónustan verður aðgengilegri fyrir blóðgjafa, óháð staðsetningu.

Vinnslusvæði bílsins var hannað og smíðað hjá fyrirtækinu Bílaklæðningar eftir forskrift Blóðbankans og tókst verkefnið afar vel. Þar hefur verið skapað nútímalegt og vel útfært vinnuumhverfi sem styður bæði öryggi, gæði og góða upplifun blóðgjafa.

Helstu áskoranir Blóðbankans snúa meðal annars að því að tryggja nægilegan fjölda blóðgjafa. Með auknu aðgengi, markvissri kynningu og sýnilegri þjónustu eru væntingar um góða þátttöku og að fleiri sjái sér fært að leggja sitt af mörkum með blóðgjöf.

Innleiðing Bjargar markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun þjónustu við blóðgjafa og eykur bæði sveigjanleika og öryggi í blóðsöfnun á landsvísu.

Formleg afhending bílsins til Blóðbankans fer fram mánudaginn 18. maí kl. 13:00 á efsta plani Kringlunnar. Heimastöð bílsins verður á Akureyri, þar sem haldin verður móttaka þriðjudaginn 19. maí kl. 11:30 á bílastæði við Glerártorg.