Fara beint í efnið

24. júní 2022

Nýjar norrænar næringarráðleggingar, NNR2022, fleiri kaflar til umsagnar

Nú gefst sérfræðingum og öðrum áhugasömum færi á að gera athugasemdir við fleiri kafla í tengslum við endurskoðun á norrænum næringarráðleggingum. Þeir kaflar sem nú eru til umsagnar eru: Vökva og vatnsjafnvægi, máltíðamynstur, A-vítamín, K-vítamín, joð, fólat, kalk, kalíum, fita og olíur.

NNR - norrænar næringarráðleggingar - merki

Opið er fyrir umsagnir til 16. ágúst fyrir fyrstu fjóra kaflana, til 29. ágúst fyrir joð og til  9. september fyrir fjóra síðast töldu kaflana.

Þeir sem vilja fá sendar tilkynningar beint, þegar nýir kaflar koma til umsagnar, geta skráð sig á heimasíðu  NNR2022.

Nánari upplýsingar veita verkefnisstjórar næringar:
Hólmfríður Þorgeirsdóttir , holmfridur.thorgeirsdottir@landlaeknir.is
Jóhanna Eyrún Torfadóttir , johanna.e.torfadottir@landlaeknir.is