1. mars 2016
1. mars 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Nýjar lögreglubifreiðar hjá LRH
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið tvær nýjar lögreglubifreiðar af gerðinni Volvo V70, en það er umferðardeild embættisins sem fær þær til afnota. Við þetta skiptir umferðardeildin út tveimur eldri lögreglubifreiðum sem voru komnar til ára sinna. Ekki verður sagt að gömlu bílanna sé sérstaklega saknað enda þeir nýju búnir fullkomnum búnaði sem hæfir nútíma löggæslu.
Lögreglumennirnir Árni og Pétur voru himinlifandi þegar bílarnir voru afhentir sl. föstudag.