24. júní 2026
24. júní 2026
Nýjar kröfur um skýrslugjöf um kynbundinn launamun
Jafnlaunavottun og jafnlaunastaðfesting falla úr lögum

Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem fela í sér breytta nálgun á því hvernig atvinnurekendur sýna fram á jafnrétti í launamálum. Helsta breytingin er sú að jafnlaunavottun og jafnlaunastaðfesting falla brott úr lögum en í staðinn er tekin upp skylda til skýrslugjafar um kynbundinn launamun.
Hverjir falla undir nýju reglurnar?
Nýju kröfurnar gilda um fyrirtæki og stofnanir þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli. Fyrirtæki og stofnanir þar sem 25 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli þurfa áfram að skila inn jafnréttisáætlun.
Hvað þarf að gera?
Atvinnurekendur sem lögin gilda um skulu á þriggja ára fresti skila gögnum til Jafnréttisstofu sem sýna fram á að launakerfi þeirra:
Tryggi jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf
Byggi á kynhlutlausum viðmiðum
Hvaða gögnum þarf að skila?
Skýrslugjöfin felur meðal annars í sér:
Starfaflokkun byggða á hlutlægum viðmiðum
Launagreiningu sem sýnir meðaltal fastra mánaðarlauna fyrir dagvinnu, fastar viðbótargreiðslur fyrir störf og allar aukagreiðslur eftir kynjum.
Áætlun um úrbætur, ef óútskýrður launamunur greinist
Hvenær þarf að skila?
Ný lög taka gildi þann 1. september 2026
Atvinnurekandi sem hefur gilda jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu þarf ekki að skila samkvæmt nýju kerfi fyrr en vottun eða staðfesting rennur út
Atvinnurekandi sem lagaskyldan gildir um, sem hefur ekki jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu, þarf að skila gögnum til Jafnréttisstofu innan 6 mánaða frá því að lögin taka gildi.
Hvernig er gögnum skilað?
Innsendingar- og upplýsingagátt sem mun halda utan um skýrslugjöfina er í þróun og mun kerfið verða tilbúið þann 1. september nk. Gáttin verður aðgengileg á vefsíðu Jafnréttisstofu og á island.is.
Er hægt að nálgast leiðbeiningar til að auðvelda vinnuna?
Allar frekari upplýsingar, leiðbeiningar og fræðsla munu verða aðgengileg á vefsíðu Jafnréttisstofu.
Hlutverk Jafnréttisstofu:
Hefur eftirlit með skýrslugjöf,
Heldur opinberar skrár yfir skilaskylda aðila
Birtir skrá yfir atvinnurekendur sem hafa uppfyllt lagaskylduna
Markmið breytinganna
Með breytingunum er lögð áhersla á aukið gagnsæi. Niðurstöður launagreiningar skulu sem fyrr kynntar starfsfólki og vera þeim aðgengilegar að teknu tilliti til persónuverndar. Markmiðið með breytingunum er meðal annars að:
Auka gagnsæi í launamálum
Styrkja raunverulegt jafnrétti í launum
Leggja meiri áherslu á mælingar, greiningu og úrbætur fremur en formlega vottun
Draga úr og á endanum útrýma kynbundnum launamun