Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. desember 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ný umdæmaskipan lögreglu tekur gildi um áramótin

Ný umdæmaskipan

Breyting á lögreglulögum tekur gildi á miðnætti um áramótin og hefur í för með sér miklar breytingar á umdæmaskipan lögreglu, og þeim verður þar með fækkað úr 15 í 9. Engar breytingar verða á umdæmum lögreglustjóranna á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Einu breytingarnar á Vestfjörðum og í Vestmannaeyjum verða þær að aðskilnaður verður milli lögreglu og sýslumanns en umdæmin að öðru leyti óbreytt. Önnur umdæmi verða sameinuð undir stjórn lögreglustjóra í hverjum landshluta. Sambærilegar breytingar verða gerðar á umdæmum sýslumanna.Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig umdæmi lögreglu og sýslumanna skiptast eftir landshlutum og hvar starfstöðvar verða. Starfstöðvar sýslumanna eru táknaðar með bláum hring en starfstöðvar lögreglu með svörtum. Stærri hringir með bókstafnum L tákna aðalstöðvar lögreglu en stærri hringir með bókstafnum S tákna aðalstöðvar sýslumanna.

Breytingar verða á símanúmerum lögreglu sem hér segir:

Lögreglumdæmi með ný símanúmer AðalnúmerLögreglustjórinn á Austurlandi 444-0600Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra 444-2800Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra 444-0700Lögreglustjórinn á Suðurlandi 444-2000Lögreglustjórinn á Suðurnesjum 444-2200Lögreglustjórinn á Vestfjörðum 444-0400Lögreglustjórinn á Vesturlandi 444-0300Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum 444-2090

Engar breytingar verða gerðar á símanúmerum Ríkislögreglustjórans og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.