Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. júní 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ný neyðaráætlun vegna flugverndar fyrir Reykjavíkurflugvöll

Ríkislögreglustjóri ásamt lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og Flugvallarstjóranum á Reykjavíkurflugvelli staðfestu í dag nýja neyðaráætlun vegna flugverndar fyrir Reykjavíkurflugvöll. Áætlunin tók gildi við undirritun og frá sama tíma féll úr gildi Neyðaráætlun frá 2. mars 1988.

Markmið áætlunarinnar er að forða mann- og/eða eignartjóni og er hún unnin í samvinnu af embættunum sem fara jafnframt með ábyrgðarforræði vegna flugverndaraðgerða á Reykjavíkurflugvelli og staðfestir starfsskyldur þeirra við neyðaraðstæður.

Þessi áætlun er sú fyrsta af fjórum sem ríkislögreglustjóri hyggst gera á þessu ári, en einnig verða gerðar áætlanir vegna Keflavíkurflugvallar, Akureyrarflugvallar og Egilsstaðaflugvallar.