1. júlí 2026
1. júlí 2026
Ný myndbönd á SignWiki
Í tilefni af því að 15. júní er sá dagur sem Lög um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls tóku gildi árið 2011, birti SHH nokkur myndbönd með málhöfum ÍTM á SignWiki. Í þetta sinn er um að ræða hjónin Baldur Snæhólm Einarsson og Sigurborg Skjaldberg, Sirrý.
Baldur var fæddur 1940 í Reykjavík og Sirrý 1941 í Hafnarfirði. Þau kynntust í Heyrnleysingjaskólanum í Stakkholti, urðu par árið 1959 og gengu saman götuna í tæp 61 ár, eða þar til Sirrý lést í apríl 2020. Barnabörn þeirra tóku fram í minningargrein um ömmu sína að á heimili þessara heiðurshjóna „var væntumþykja og umhyggja allsráðandi“. Þar kemur einnig fram að þegar barnabörnin fóru á táknmálsnámskeið „áttuðum við okkur á því hvernig hljóðin sem fylgja táknmálinu veita okkur hlýju og innri ró og fannst okkur það til marks um hversu vel okkur leið á heimilinu þeirra.“
Táknmálið var mikilvægur hluti af lífi þeirra beggja. Í minningargrein um Sirrý segja börn þeirra um móður sína að táknmálið hafi verið „hennar móðurmál og hún brann fyrir þróun þess og var stöðugt að velta fyrir sér hvernig væri hægt að segja þetta eða hitt á táknmáli og gera tillögur að nýjum táknum.“ Hún lagði sitt af mörkum fyrir samfélag heyrnarlausra á Íslandi, t.d. með því að sitja í táknmálsnefnd Félags heyrnarlausra og vinna bæði við táknmálskennslu og sem stuðningsfulltrúi fyrir nemendur og aldraða einstaklinga sem töluðu táknmál.
Myndböndin sem nú eru birt á SignWiki eru birt með leyfi Baldurs. Þau eru liður í stefnu SHH 2026-2029 og fjármálaáætlun stjórnvalda 2026-2030, þar sem lögð er áhersla á varðveislu málsins og aðgengi almennings að ÍTM menningararfi þjóðarinnar. Um er að ræða viðtöl við Baldur og Sirrý, nafnatákn þeirra hjóna og umræður þeirra um ÍTM. Einnig má sjá myndbandið „Gamlir vinir“ frá árinu 2006, en þar má sjá Baldur spjalla við vini sína og skólabræður.
Myndböndin með Baldri má sjá hér: Málhafar ÍTM, fæddir 1900 - 1940
Myndböndin með Sirrý má sjá hér: Málhafar ÍTM, fæddir 1941 - 1961
