6. október 2025
6. október 2025
Ný lögreglutæki bætast í flotann
Í dag voru fyrstu Audi Q6 rafmagnslögreglubifreiðarnar afhentar notendum sínum.

Audi Q6 lögreglubifreið. Rafmagnsbifreið.
Í dag voru fyrstu Audi Q6 rafmagnslögreglubifreiðarnar afhentar notendum sínum en á dögunum var gerður samningur til 7 ára um sölu á allt að 72 bifreiðum af þessari gerð til fjögurra embætta og því má gera ráð fyrir að bílarnir verði algeng sjón í borginni og víðar. Fyrst til að fá þessi nýju tæki voru lögreglumenn sem sinna Samfélagslöggæslu og Umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Mikil eftirvænting er einkennandi þegar ný lögreglutæki koma í flotann, en eins og mörg vita þá eru lögreglubifreiðar ekki bara tæki til að komast milli staða, heldur skrifstofa, aðsetur og vinnurými lögreglumanna – það er því mikilvægt að tækin séu vel til þess fallinn – kraftmikil en jafnt sparsöm og umfram allt örugg. Ljóst er að tilfærsla yfir í rafmagnsbfreiðar mun einnig hjálpa okkur þegar kemur að grænum skrefum embættisins og töluverður sparnaður sem verður með tilfærslu yfir í rafmagn.