Fara beint í efnið

2. september 2026

Ný lög um skýrslugjöf um kynbundinn launamun

Nýtt þjónustu- og gagnakerfi Jafnréttisstofu tekið í notkun

Þann 1. september 2026, tóku gildi ný lög um skýrslugjöf um kynbundinn launamun. Samhliða hefur Jafnréttisstofa tekið í notkun nýtt þjónustu- og gagnakerfi sem heldur utan um skil, samskipti og upplýsingar vegna skýrslugjafarinnar.

Með lögunum falla jafnlaunavottun og jafnlaunastaðfesting úr gildi. Í þeirra stað taka gildi nýjar kröfur um reglubundna skýrslugjöf hjá fyrirtækjum og stofnunum þar sem að jafnaði starfa 50 eða fleiri einstaklingar á ársgrundvelli.

„Markmiðið með breytingunum er að auka gagnsæi, styðja við markvissa greiningu launa og efla jafnrétti á vinnumarkaði. Nýja skilagáttin auðveldar atvinnurekendum að uppfylla lagaskyldur sínar og tryggir skilvirkari upplýsingagjöf og eftirfylgni,“ segir Martha Lilja Olsen, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu.

Ný nálgun

Samkvæmt lögunum skulu atvinnurekendur á þriggja ára fresti skila gögnum sem sýna fram á að launakerfi þeirra tryggi jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf og að launaákvarðanir byggist á kynhlutlausum viðmiðum. Skýrslugjöfin felur meðal annars í sér starfaflokkun, launagreiningu og úrbótaáætlun ef þörf krefur.

Atvinnurekendum ber einnig að kynna niðurstöður launagreiningar fyrir starfsfólki með hliðsjón af persónuverndarsjónarmiðum.

Nýtt þjónustu- og gagnakerfi

Nýja kerfið er aðgengilegt á vef Jafnréttisstofu og í gegnum Ísland.is. Þar geta atvinnurekendur:

  • Skilað lögbundnum gögnum

  • Fylgst með stöðu sinna mála

  • Nálgast leiðbeiningar og fræðsluefni

  • Fengið upplýsingar um skilafresti og kröfur laganna

Á næstu vikum mun Jafnréttisstofa bjóða upp á fræðslu og stuðning vegna innleiðingar nýja kerfisins. Nánari upplýsingar um lagabreytingarnar og framkvæmd skýrslugjafarinnar má finna á vef stofnunarinnar. Atvinnurekendur sem eru nú þegar með útrunna jafnlaunavottun eða þar sem jafnlaunavottun rennur út á næstu mánuðum, eru hvattir til að kynna sér vel nýtt kerfi og hefja undirbúning að fyrstu skilum.

Helstu atriði

  • Lögin tóku gildi 1. september 2026.

  • Þau gilda um fyrirtæki og stofnanir með 50 eða fleira starfsfólk að jafnaði á ársgrundvelli.

  • Jafnlaunavottun og jafnlaunastaðfesting falla úr lögum.

  • Jafnréttisstofa annast umsýslu og eftirlit með skýrslugjöfinni.