14. apríl 2026
14. apríl 2026
Ný gátt til að tilkynna netglæpi
Dómsmálaráðherra opnaði í dag nýja stafræna tilkynningagátt og fræðslusvæði um netglæpi á vef lögreglu.

Með gáttinni er almenningi, fyrirtækjum og stofnunum gert kleift að tilkynna netglæpi á einfaldan, öruggan og aðgengilegan hátt. Á fræðslusvæðinu má svo nálgast upplýsingar um hvað ber að varast og hvernig hægt er að verja sig fyrir slíkum glæpum.
Með gáttinni er stigið mikilvægt skref í baráttunni við netglæpi auk þess sem lögð er áhersla á fræðslu, forvarnir og skjót viðbrögð við netglæpum. Markmiðið er að efla vitund almennings um netsvik og auðvelda tilkynningarferlið.
„Netglæpir og fjársvik á netinu eru ekki lengur einangruð brot – þau eru orðin hluti af alþjóðlegri skipulagðri brotastarfsemi. Með því að safna upplýsingum á einum stað styrkjum við getu lögreglu til að greina mynstur, bregðast hraðar við og vinna markvisst gegn skipulagðri brotastarfsemi. Við erum að byggja upp kerfi sem gerir okkur kleift að sjá heildarmyndina – og bregðast við henni af festu,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Fjársvik í brennidepli
Í fyrstu verður lögð sérstök áhersla á fjársvik, sem eru ein algengustu og skaðlegustu brotin á netinu í dag. Slík brot valda ekki aðeins fjárhagslegu tjóni heldur geta einnig grafið undan trausti í samfélaginu.
Með nýrri tilkynningargátt er hægt að senda formlegar tilkynningar til lögreglu ef brot hefur átt sér stað eða ábendingu um tilraun til netbrots. Ferlið er einfalt og notendavænt. Þær tilkynningar sem berast nýtast lögreglu við að greina mynstur í þeim brotum sem eiga sér stað á hverjum tíma, vara við þeim og vinna gegn þeim.
Með því að einfalda tilkynningar um fjársvik og efla fræðslu eru varnir samfélagsins gegn netsvikum styrktar, gagnsæi aukið og bætt í þjónustu við þá sem verða fyrir eða verða varir við slíka brotastarfsemi.
Hér má nálgast gáttina.