Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. mars 2026

Nú finnur þú fleira á Mínum síðum

Mínar síður á Ísland.is auka þægindi og aðgengi að upplýsingum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Framboð á þjónustu og gögnum þar hefur aukist mikið á síðustu misserum en nú veita yfir 40 stofnanir og opinberir aðilar þjónustu og birta gögn á Mínum síðum Ísland.is.

Hér eru 7 dæmi um upplýsingar sem þú getur kynnt þér á Mínum síðum:

  • Tilvísanir og skráningu á biðlista í heilbrigðiskerfinu – finnur þú nú undir hnappinum Heilsa.

  • Bólusetningarstöðu þína og barna þinna – finnur þú nú undir hnappinum Heilsa.

  • Upplýsingar um undirskriftalista sem þú hefur skrifað undir á Ísland.is – undir hnappinum Mínar upplýsingar.

  • Tilkynningar frá héraðsdómstólum og lögreglu, eins og ákærur og dómar – í stafrænu pósthólfi eða undir hnappinum Lög og regla.

  • Lyfjareiknivél sem sýnir áætlaðan kostnað þinn vegna lyfjakaupa, miðað við þrepastöðu – undir hnappinum Heilsa.

  • Stafræn umboð sem þú hefur veitt eða fengið – undir hnappinum Aðgangsstýring.

  • Stöðu umsókna sem þú hefur hafið, sent inn eða lokið – undir Umsóknir.

Meira á leiðinni

Brátt finnur þú einnig:

  • Húsaleigusamninga sem þú ert aðili að – undir hnappinum Mínar upplýsingar.

  • Yfirlit yfir tímabókanir í heilbrigðiskerfinu – undir hnappinum Heilsa.

  • Yfirlit yfir greiðslur frá Tryggingastofnun og gögn vegna mála hjá þeim – undir hnappinum Framfærsla.


Margt í Ísland.is appinu

Þú hefur líka aðgang að ýmsum upplýsingum og þjónustu af Mínum síðum í Ísland.is appinu. Þar er áherslan á gögn og upplýsingar sem almenningur nýtir sér dags dagslega, þar má meðal annars finna:

  • Stafræna pósthólfið.

  • Stafræn ökuskírteini og fleiri opinber skírteini, auk skanna til staðfestingar á skírteinum annara.

  • Upplýsingar um stöðu umsókna hjá opinberum stofnunum.

  • Kílómetraskráningu fyrir ökutæki í þinni eigu.

  • Upplýsingar um bólusetningar, lyf og fleira sem tengist heilbrigðiskerfinu.

  • Upplýsingar um Loftbrú og afsláttarkóða fluggjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.