20. október 2026
20. október 2026
Nú er hægt að greiða með millifærslu fyrir umsóknir á Ísland.is
Nú er hægt að greiða fyrir umsóknir á Ísland.is með millifærslu beint af eigin bankareikningi.

Hingað til hefur verið hægt að greiða með debet- og kreditkortum og fyrir valdar umsóknir með kröfu. Með nýju greiðsluleiðinni fá notendur því aukið val um hvernig þeir greiða fyrir opinbera þjónustu.
Þegar notandi velur að greiða með millifærslu í Greiðslukerfi Ísland.is skráir hann inn þann bankareikning sem hann vill nota. Kerfið sendir þá greiðslubeiðni í gegnum innviði Blikk.
Greiðandinn samþykkir greiðslubeiðnina í bankaappinu með þeirri auðkenningarleið (t.d. andliti eða fingrafari) sem hann er vanur að nota. Þegar greiðslan hefur verið samþykkt færist upphæðin strax af bankareikningi greiðanda, inn á bankareikning Fjársýslunnar. Að því loknu hefst afgreiðsla umsóknarinnar.
Nú er hægt að millifæra af reikningum Landsbankans, Íslandsbanka, Arion banka og Kviku/Aur og von er á fleiri aðilum á næstunni.
Nýja greiðsluleiðin getur verið notuð meðal annars við umsóknir um sakavottorð, vegabréf, ökuskírteini, við eigendaskipti á ökutækjum og vegna ýmissa leyfisveitinga.
Á næstunni er stefnt að því að innleiða Greiðslukerfi Ísland.is undir „Ógreiddir reikningar/ Fjármál“ á Ísland.is. Þar verður hægt að greiða ýmis opinber gjöld með millifærslu sem byggir á þjónustu Blikk.