Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. september 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Notum bílbelti

Þótt mikilvægi bílbelta sé flestum ljóst eru enn margir sem hirða ekki um að nota þennan sjálfsagða öryggisbúnað. Gögn sýna að líkurnar á því að slasast í umferðinni eru margfalt meiri meðal þeirra sem nota ekki bílbelti. Þetta er rifjað upp hér því í gær og fyrradag stöðvaði lögreglan nokkra tugi ökumanna sem notuðu ekki bílbelti. Hinir sömu eiga 10.000 kr. sekt yfir höfði sér, sem er reyndar aukaatriði. Aðalmálið er að ökumenn spenni alltaf beltin.