Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. febrúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Níu teknir fyrir ölvunarakstur

Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á föstudagskvöld og fjórir á bæði laugardag og sunnudag. Þetta voru átta karlar á aldrinum 22-39 ára og ein kona, 17 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og þrír hafa aldrei öðlast ökuréttindi.

Afleiðingar ölvunaraksturs.