26. október 2010
26. október 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Níu teknir fyrir ölvunarakstur
Níu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, þrír á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 19-64 ára og tvær konur, 25 og 33 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.