Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. febrúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Níu óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru níu ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Kópavogi og einn á Seltjarnarnesi. Fimm voru teknir á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-32 ára. Einn þeirra hefur aldrei öðlast ökuréttindi og annar reyndist vera á stolnum bíl.