Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. september 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Níu óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru níu ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sjö þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, fimm á laugardag, einn á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru átta karlar á aldrinum 19-34 ára og ein kona, 31 árs. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.