Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. maí 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Níu óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru níu ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Kópavogi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 17-38 ára. Fjórir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og sá fimmti var á stolnum bíl.