Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. apríl 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Níu óku undir áhrifum fíkniefna

Um páskana voru níu ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Átta voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Fjórir voru teknir á föstudaginn langa, tveir á laugardag, tveir á páskadag og einn aðfaranótt þriðjudags. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 22-52 ára og tvær konur, 18 og 33 ára. Sex þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.