Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. apríl 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Nítján óku undir áhrifum fíkniefna

Um páskana voru nítján ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sextán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. Þrír voru teknir á skírdag, átta á laugardag, sex á páskadag og tveir á annan í páskum. Þetta voru átján karlar á aldrinum 16-38 ára og ein kona, 20 ára. Fimm þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og þrír hafa aldrei öðlast ökuréttindi.