Fara beint í efnið

9. júní 2026

Niðurstöður RAI mat fyrir hjúkrunarheimili HSA tímabilið mars-maí 2026

RAI mat er notað til að meta gæði þjónustu og þarfir íbúa á hjúkrunarheimilunum (Raunverulegur aðbúnaður íbúa). Þetta mat er gert þrisvar sinnum yfir árið og er ætlað að meta heilsufar og hjúkrunarþarfir íbúa þar sem stuðst er við niðurstöður 20 gæðavísa. Hafa þarf í huga að gæðavísar eru vísbendingar um hvernig meðferð og umönnun er á hjúkrunarheimilum en ekki algildur sannleikur.

Niðurstöður RAI mats fyrir HSA í heild er mjög svipuð og síðast. Af 20 gæðaviðmiðum fer HSA yfir efri gæðaviðmið í 2 gæðavísum á tímabilinu mars-maí 2026, sem er eins og síðast. Af þessum tveimur gæðavísum er landsmeðaltalið einnig yfir í öðrum þeirra og rétt undir línunni í efra gæðaviðmiði í hinu. HSA er undir neðra gæðaviðmiði í 3 gæðavísum sem er einum færra gæðavísum en síðast. Ef borin eru saman útkoma gæðavísa hjá HSA annars vegar og landsmeðaltals hins vegar er HSA undir landsmeðaltali í 3 gæðavísum (þremur færri en síðast), svipuð niðurstaða og landsmeðaltalið í öðrum 9 gæðavísum (var 6) og yfir landsmeðaltali í 8 gæðavísum (sama og síðast).

HSA stendur vel að vígi hvað varðar gæðavísa um algengi líkamsfjötra, algengi vökvaskorts og algengi hægðastíflu, er undir neðra gæðaviðmiði þar sem og landsmeðaltali. Undanfarið hafa gæðaviðmið sem lúta að þunglyndi íbúa verið skoðuð sérstaklega og hefur gæðaviðmið um þunglyndiseinkenni lækkað töluvert síðan síðast, færist nær línu um neðra gæðaviðmið sem og landsmeðaltali. Einnig hefur vinna við að bæta gæðivísinn um þunglyndiseinkenni án meðferðar skilað árangri og er HSA nú komið vel niður fyrir efra gæðaviðmiði þar. Þau atriði sem skoða þarf betur snýr að algengni á notkun 9 eða fleiri lyfja og algengi þvagleggja. HSA er yfir efra gæðaviðmiði og landsmeðaltali þar og hafa gæðaviðmið um algengi þvagleggja hækkað vel yfir efri gæðaviðmið. Algengi um notkun á 9 eða fleiri lyfjum hefur svo til staðið í stað síðustu þrjú matstímabil en fer þó aðeins niður á við.

Hægt er að meta svokallaða hjúkrunarþyngd með RAI mælitækinu en hjúkrunarþyngd er notuð til að gefa til kynna hversu mikið álag er á hjúkrunarheimilum yfir ákveðið tímabil.

Hjúkrunarþyngd á hjúkrunarheimilum HSA mældist 1,14 fyrir tímabilið mars-maí 2026, hækkar frá því síðast eða um 0,02. Þetta er þó enn undir landsmeðaltali þar sem hjúkrunarþyngd er 1,24. Af þeim 101 sem voru metnir mælast 20 skjólstæðingar HSA með hjúkrunarþyngd yfir landsmeðaltali eða rétt tæp 20%. Þeir sem skora hæst eru með 1,63. Lægsta skor er 0,92 en miðgildi er 1,12.

Við mat á hjúkrunarþyngd er notast við RUG flokkun og fer flokkunin eftir því hversu flókin eða sérhæfð hjúkrunin er auk þess hve mikla aðstoð íbúi þarf við ADL (athafnir daglegs lífs) eða hversu mikla þjálfun/virkni viðkomandi fær á hjúkrunarheimilinu. Þetta þýðir í raun hversu mikla þjónustu viðkomandi fær inn á hjúkrunarheimilinu. Flokkarnir eru alls 7 en skiptast svo í 44 undirflokka eftir því hversu mörg stig viðkomandi fær vegna ADL. Um 50% íbúa hjúkrunarheimila HSA falla í flokk um sérstaka endurhæfingu og um 30% í flokk um skerta líkamlega færni. Þess má geta að hæst er hægt að fá 1,79 stig í efsta flokki sérstakrar endurhæfingu, næsthæst er í efsta flokki umfangsmikil hjúkrun (1,63) en lægst 0,66 stig í neðsta flokknum um hegðunarvanda. Íbúar geta lent í öllum þessum flokkum en skráist í þann flokk sem hefur hæsta vægi.