1. júní 2026
1. júní 2026
Niðurstöður barna nú aðgengilegar á Mínum síðum Ísland.is
Foreldrar og forsjáraðilar geta nú nálgast niðurstöður barna sinna úr stöðu- og framvinduprófum Matsferils í stærðfræði og lesskilningi á Mínum síðum Ísland.is.

Niðurstöðurnar birtast á nýju grunnskólasvæði undir Menntun, þar sem framvegis verður hægt að nálgast upplýsingar um skólagöngu barna á einum stað. Svæðið hefur verið unnið í samstarfi Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og Stafræns Íslands.
Til að nálgast niðurstöðurnar ferðu inn á Mínar síður Ísland.is, velur Menntun, þá Grunnskóli og að lokum nafn barnsins. Þar má finna niðurstöður úr stöðu- og framvinduprófunum.