Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. desember 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Neyðarstig almannavarna í gildi á Seyðisfirði vegna skriðuhættu

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að hækka almannavarnastig á Seyðisfirði úr hættustigi í neyðarstig.

Stór aurskriða féll úr Botnabrún, milli Búðarár og Stöðvarlækjar, skömmu fyrir klukkan þrjú í dag og féll á nokkur hús.

Allir íbúar og aðrir á Seyðisfirði eru beðnir um að mæta í félagsheimilið Herðubreið og gefa sig fram í fjöldahjálparstöð eða hringja í síma 1717. Stefnt er að því að Seyðisfjörður verði rýmdur.

Allar björgunarsveitir á Austurlandi hafa verið boðaðar og lögreglumenn frá lögreglunni a höfuðborgarsvæðinu, sérsveit ríkislögreglustjóra og frá logreglunni á Norðurlandi eystra hafa einnig verið sendir á staðinn.