Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. febrúar 2026

Netsvik í nafni Skattsins

Því miður gerist það ekki oft að endurheimt náist í svikamálum yfir netið en þar skiptir tíminn öllu máli. Í dag voru aðstæður þó þannig að lögregla gat fylgst með því í rauntíma þegar fólk með rafræn skilríki var blekkt til þess að skrá sig inn á svikasíðu í nafni Skattsins og með því gefa brotamönnum leið til þess að hafa af þeim fjármuni. Jafnóðum hringdi lögregla í þolendur þessara brota og hvatti þá til að vera í samskiptum við sinn viðskiptabanka. Unnið er að því að taka síðuna niður en þangað til verðum við á vaktinni!

Lögregla ítrekar að fólk hafi varann á þegar því eru sendir tenglar inn á vefsíður. Telji fólk óljóst hvort um svik sé að ræða eður ei er góð regla að hafa samband við sendandann símleiðis í opinbert símanúmer eða fara sjálf inn á opinbera síðu sendanda og skrá sig inn þar – ekki ýta á tengla.

Ef fólk telur sig hafa orðið fyrir svikum vegna þessa og telur sig hafa tapað fjármunum er því bent á að hafa strax samband við sinn viðskiptabanka og fá þar ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu.