3. júní 2026
3. júní 2026
Netbrot í nafni umferðarlögreglunnar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við smáskilaboðum sem eru að berast til fjöldamargra íslenskra símanúmera þessa stundina. Um er að ræða skilaboð sem sögð eru vera frá umferðarlögreglunni og fólki bent á að ýta á hlekk til að greiða sekt. Aldrei hafa borist jafn margar tilkynningar til lögreglu vegna netbrotatilrauna á jafn skömmum tíma og má því ætla að um mjög umfangsmiklar tilraunir sé að ræða. Lögregla beinir þeim tilmælum til fólks að ýta aldrei á hlekki sem það fær senda sem eiga að varða greiðslur. Fólki er ráðlagt að leita alltaf inn á viðurkennda síðu þess sem skilaboðin eiga að vera frá. Sektir frá lögreglu berast alltaf inn á island.is

Telji fólk sig hafa orðið fyrir svikum af þessu tagi og hafa tapað fjármunum er því bent á að hafa tafarlaust samband við sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf og í framhaldinu tilkynna málið til lögreglu. Þá minnir lögregla á netbrotagáttina á island.is sem finna má undir „samfélag og réttindi“. Þar er bæði hægt að tilkynna netbrot til lögreglu sem og tilraunir til slíkra brota.