Fara beint í efnið

20. október 2026

Námskeið í ACT

Sjónstöðin býður upp á námskeið í ACT fyrir notendur Sjónstöðvarinnar.

Hvað er ACT?

ACT (Acceptance and Commitment Therapy) er aðferð sem getur hjálpað fólki að auka sálrænan sveigjanleika, takast betur á við erfiðar hugsanir og tilfinningar og finna skýrari stefnu í lífinu. ACT byggir meðal annars á núvitund, sátt og því að læra að bregðast við áskorunum á sveigjanlegri hátt, í stað þess að reyna að bæla niður eða forðast það sem er erfitt. 

Hvað verður gert á námskeiðinu?

Á námskeiðinu verður unnið með hvernig hugsanir, tilfinningar og líkamleg viðbrögð geta haft áhrif á okkur og hvernig hægt er að nálgast þau á annan og gagnlegri hátt. Þátttakendur fá tækifæri til að læra hagnýtar leiðir til að takast á við krefjandi aðstæður og auka færni sína í að vera meðvitaðir um eigin viðbrögð. 

Áhersla verður meðal annars lögð á að: 

  • kynnast eigin hugsunum, tilfinningum og viðbrögðum og læra að takast á við þau á sveigjanlegri hátt, 

  • æfa núvitund og vera meira til staðar í augnablikinu, 

  • skoða eigin gildi og hvað skiptir mestu máli í lífinu, 

  • átta sig á hvernig gildin geta hjálpað til við að taka ákvarðanir og velja stefnu, 

  • efla sjálfstraust og trú á eigin getu til að takast á við áskoranir. 

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist betri skilning á sjálfum sér og fái verkfæri sem geta nýst í daglegu lífi. Áherslan er ekki á að losna við allar erfiðar hugsanir eða tilfinningar, heldur að læra að bregðast við þeim á þann hátt sem styður við það líf sem viðkomandi vill lifa. 

Hvenær verður námskeiðið?

Námskeiðin verða tvö, eitt fyrir fólk á aldrinum 25-60 ára og annað fyrir fólk sem er eldra en 60 ára. Námskeiðið er kjörið tækifæri til að hitta aðra sem eru að takast á við sjónmissi.  

Námskeið fyrir fólk frá 60 ára aldri: mánudaga kl.13:00-15:00 frá og með 16.nóvember til og með 7.desember. 

Námskeið fyrir fólk á aldrinum 25-60 ára: þriðjudaga kl.13:00-15:00 frá og með 17.nóvember til og með 8.desember.  

Hvar verður námskeiðið haldið?

Námskeiðið verður í Sjónstöðinni, Hamrahlíð 17, 6 hæð.  

Kostar námskeiðið?

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.  

Hver hefur umsjón með námskeiðinu?  

Hjördís Inga Guðmundsdóttir sálfræðingur hefur umsjón með námskeiðinu en frekari upplýsingar um námskeiðið veita Vala Jóna Garðarsdóttir og Steinunn Sævarsdóttir hjá Sjónstöðinni.   

Hvernig skráir fólk sig?  

Skráning er til 11.nóvember og fer fram í afgreiðslu Sjónstöðvar, í síma 545-5800, eða gegnum netfangið sjonstodin@sjonstodin.is