Fara beint í efnið

20. nóvember 2023

Námskeið fyrir prófdómara flugskírteina

Árið 2024 verða haldin námskeið fyrir prófdómara flugskírteina á fjölstjórnarvélar 8. febrúar og 12. september í Ármúla 2.

Ármúli 2

Árið 2024 mun Samgöngustofa halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina á fjölstjórnarvélar (TRE/SFE/CRE) fimmtudagana 8. febrúar og 12. september í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, frá kl. 9:00 til 16:00.

Námskeið fyrir prófdómara flugskírteina á einstjórnarvélar (FE) verður auglýst sérstaklega.

Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á síðastliðnum 12 mánuðum.

Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 2 vikum fyrir áætlaðan námskeiðsdag. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að velja inn á námskeiðið eftir gildistíma réttinda ef til þess kemur að fleiri en 20 skrái sig. Tilgreina þarf nafn þátttakanda, skírteinisnúmer, tölvupóstfang og nafn flugrekanda (ef við á) við skráningu.

Þátttakendur eru beðnir um að hafa með sér fartölvu á námskeiðið, ef mögulegt.

Námskeiðsgjaldið er samkvæmt gildandi gjaldskrá Samgöngustofu. Innifaldar eru veitingar meðan á námskeiði stendur.