Fara beint í efnið

17. júlí 2023

Námskeið fyrir prófdómara flugskírteina

Námskeiðið verður haldið í Ármúla 2, fimmtudaginn 14. september 2023.

Ármúli 2

Samgöngustofa mun halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina fimmtudaginn 14. september 2023 í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, frá kl. 9:00 til 16:00.

Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á síðastliðnum 12 mánuðum.

Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 31. ágúst næstkomandi. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að velja inn á námskeiðið eftir gildistíma réttinda ef til þess kemur að fleiri en 20 skrái sig. Tilgreina þarf nafn þátttakanda, skírteinisnúmer, tölvupóstfang og nafn flugrekanda (ef við á) við skráningu.

Þátttakendur eru beðnir um að hafa með sér fartölvu á námskeiðið, ef mögulegt.

Námskeiðsgjaldið er samkvæmt gildandi gjaldskrá Samgöngustofu, 37.540 kr. Innifaldar eru veitingar meðan á námskeiði stendur.