23. október 2025
23. október 2025
Námskeið fyrir prófdómara árið 2026
Árið 2026 mun Samgöngustofa halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina á fjölstjórnarvélar (TRE/SFE/CRE) þann 12. mars og 14. október. Námskeið fyrir einstjórnarvélar (FE) verður haldið þann 5. mars.

Námskeiðið verður haldið í Flugröst
Námskeiðin verða haldin í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, frá kl. 9:00-16:00.
Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið prófdómaranámskeið á síðast liðnum 12 mánuðum.
Vinsamlega sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en tveimur vikum fyrir áætlaðan námskeiðsdag. Hámarks fjöldi á námskeiðið er 20 manns. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að velja inn á námskeiðið eftir gildistíma réttinda ef til þess kemur að fleiri en 20 skrái sig. Við skráningu þarf að tilgreina nafn þátttakanda, skírteinisnúmer, tölvupóstfang og nafn flugrekanda (ef við á).
Þátttakendur eru beðnir að hafa með sér fartölvu á námskeiðið, ef mögulegt.
Námskeiðsgjaldið er samkvæmt gildandi gjaldskrá Samgöngustofu. Innifaldar eru veitingar meðan á námskeiði stendur.