Fara beint í efnið

7. október 2024

Námskeið fyrir börn með kvíða á Egilsstöðum

Á Heilsugæslunni á Egilsstöðum verður boðið upp á námskeið fyrir foreldra 5 – 12 ára barna sem eru með kvíða. Námskeiðið hefur það að markmiði að kenna foreldrum aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar og efla foreldra í að nota aðferðirnar með barninu sínu til að vinna á kvíða, efla hugrekki og sjálfstraust. Algeng kvíðaeinkenni sem börn sýna eru ótti við að sofa ein, labba ein úti, ótti við hunda eða ótti við að eitthvað komi fyrir foreldra sína. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 23. október 2024 kl. 13:00 - 15:00 í Giljasal á Heilsugæslunni Egilsstöðum.

Logo HSA

Námskeiðið samanstendur af 5 tímum á 6 vikna tímabili, fyrst 4 tímar, síðan eins vikna hlé, þ.e. miðvikudaginn 20.11. 24 og svo 5. og síðasti tíminn 27.11.24, auk eftirfylgdarviðtala sem fram fara í janúar 2025.

Í öllum námskeiðstímunum er unnið með bókina „Hjálp fyrir kvíðin börn“ og eru sett fyrir heimaverkefni fyrir foreldrana, sem fela m.a. í sér talsverðan lestur og því er mikilvægt að foreldrar skuldbindi sig til að sinna þessari meðferð á meðferðartímanum og kaupa sér fyrirfram bókina sem fæst í flestum netverslunum.

https://www.forlagid.is/vara/hjalp-fyrir-kvidin-born/

https://skrudda.is/?product=hjalp-fyrir-kvidin-born

https://www.storytel.com/is/books/hj%C3%A1lp-fyrir-kv%C3%AD%C3%B0in-b%C3%B6rn-1719462

Námskeiðið er eingöngu ætlað foreldrum en börnin eru velkomin með í eftirfylgdartímann í lokin. Æskilegt er að báðir foreldrar mæti í námskeiðstímana þegar hægt er að koma því við.

Námskeiðsgjald er 2500 kr og reikningur er sendur í heimabankann að námskeiði loknu.

Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Kolbjörg Benediktsdóttir sálfræðingur og Erla Jónsdóttir þroskaþjálfi á HSA.

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst erla.jonsdottir@hsa.is , hægt er að skrá sig til 17. október. Við skráningu eru sendir út spurningalistar sem meta kvíða barnsins og þarf að svara þeim og senda til baka.