29. desember 2012
29. desember 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Nafn mannsins sem lést í köfunarslysi í Silfru
Maðurinn sem lést í köfunarslysi í Silfru í gær hét Björn Kolbeinsson og var fæddur 25. júlí 1977. Björn var ókvæntur og barnlaus. Hann starfaði sem sérfræðingur hjá EFTA með aðsetur í Genf en dvaldi nú hér í jólafríi hjá foreldrum sínum og systkinum.