Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. apríl 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Nafn mannsins sem lést í árekstri á Biskupstungnabraut í gær

Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Biskupstungnabraut í gær hét Hallgrímur Þ. Magnússon. Hann var fæddur 29. september 1949 búsettur að Bjarkarbraut 18 í Reykholti í Biskupstungum. Hallgrímur lætur eftir sig eiginkonu, fjórar uppkomnar dætur og níu barnabörn. Hann var læknir og sinnti störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, bæði í Hveragerði og á Selfossi