Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. ágúst 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Nafn konunnar sem lést í bruna í Þjórsárdal

Konan sem lést þegar eldur kom upp í hjólhýsi í Þjórsárdal um helgina hét Ragnheiður Sigurbjörg Árnadóttir til heimilis að Fífumóa 2 í Reykjanesbæ. Hún var 75 ára og lætur eftir sig sambýlismann og þrjú uppkomin börn. Ásamt rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi komu að rannsókn þessa hörmulega slyss Tæknideild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu og Kennslanefnd ríkislögreglustjóra. Talið er að upptök eldsins hafi verið út frá gasbúnaði í ísskáp hjólhýsisins.