2. desember 2008
2. desember 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Mótmæli í miðborginni
Nokkur hundruð manns komu saman til fundar á Arnarhóli um miðjan dag í gær. Fundurinn fór vel fram en að honum loknum fór hluti fundarmanna að Seðlabankanum þar sem eggjum var kastað og málningu slett á veggi. Nokkur hiti var í fólkinu, sem hélt til í og við bankann í nokkra stund, en þó kom ekki til alvarlegra átaka. Enginn var handtekinn vegna þessa.
Frá útifundinum í gær.