Fara beint í efnið

2. október 2024

Mosarnir í móanum á Spennandi sunnudegi

Á Spennandi sunnudegi 6. október milli kl. 14 og 16 bjóða Land og skógur og Náttúruminjasafn Íslands upp á skemmtilegan viðburð um mosa og móa á sýningu Náttúruminjasafnsins, Vatnið í náttúru Íslands á 2. hæð Perlunnar í Reykjavík.

Mosarnir í móanum

Skoðaðir verða alls konar mosar sem finnast í íslenskri náttúru og velt upp mikilvægi þeirra í tengslum við mólendi. Gestum býðst svo að taka þátt í skapandi textílsmiðju og búa til sína eigin mosa.

Á Íslandi vaxa yfir 600 tegundir mosa, einstakar lífverur sem setja mikinn svip á landið og eru þar með mikilvægur hlekkur líffræðilegrar fjölbreytni íslenskra vistkerfa og virkni þeirra.

Öllum er velkominn ókeypis aðgangur.

Náttúruminjasafn Íslands stendur fyrir fjölbreyttum fjölskylduviðburðum fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Það er kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur til að skemmta sér og tengjast náttúrunni á skemmtilegan hátt.