Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. janúar 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Mörg verkefni lögreglunnar á Suðurlandi á skömmum tíma.

Geysilegt álag hefur verið á lögreglumönnum á Suðurlandi í dag. Auk köfunarslyss á Þingvöllum þurfti að sinna vinnuslysi á Selfossi, bílveltu á Biskupstungnabraut ofan við Reykholt, bílveltu í Kömbum, bílveltu á Þingvallavegi við Kjósaskarðsveg og útafakstri á Suðurlandsvegi í Ölfusi. Ekið var á hest á Gaulverjabæjarvegi í morgun og fleiri verkefni komu til kasta lögreglumanna. Allt þetta átti sér stað á tímabilinu frá því uppúr klukkan sjö í morgun til klukkan 13. Ekki var hægt að sinna öllum verkefnunum strax. Í einu tilviki var leitað til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem sinnti umferðaróhappinu við Kjósaskarðsveg auk þess barst liðsstyrkur frá Hvolsvelli. Mikil hálka hefur verið á vegum á Suðurlandi í dag. Lögreglan á Suðurlandi hvetur alla ökumenn til að aka með gát og ekki vera á ferð á ökutækjum nema þau séu vel búin til vetraraksturs. Gott ráð er að tjöruþvo hjólbarða.