Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. febrúar 2026

Móma-teymi í Dalabyggð

Ný nálgun í þjónustu við aldraða

Gott að eldast – Ný nálgun á þjónustu við eldra fólk

Íslenskt samfélag stendur á tímamótum. Þjóðin er að eldast og eldra fólk er virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Í því felst ekki aðeins áskorun heldur einnig mikil tækifæri. Þjónusta við eldra fólk þarf að þróast í takt við þessar breytingar. Undir heitinu Gott að eldast hefst nú ný vegferð þar sem stjórnvöld taka utan um málefni eldra fólks með nýjum hætti. Meginhugsunin er skýr: eldra fólk er ekki byrði á samfélaginu heldur hefur það ótvírætt virði.

Fléttum saman þjónustuna

Aðgerðir verkefnisins beinast að því að finna góðar lausnir sem samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk. Sérstök áhersla er lögð á að samhæfa þjónustu ríkis og sveitarfélaga, efla heilbrigða öldrun með heilsueflingu, tryggja sveigjanlega þjónustu og bæta aðgang að ráðgjöf og upplýsingum fyrir eldra fólk. Markmiðið er að skapa þjónustu sem styður við virkt og heilsuhraust eldra fólk og gerir því kleift að taka þátt í samfélaginu sem allra lengst.

Dalabyggð tekur fyrstu skrefin

Sem liður í verkefninu hefur Dalabyggð stigið mikilvægt skref með stofnun svokallaðs Móma-teymis (móttöku- og matsteymis). Teymið mun fara yfir allar umsóknir sem berast um félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun. Í teyminu eiga sæti fulltrúar frá Dalabyggð, Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) og hjúkrunarheimilinu Silfurtúni. Með því er stigið skref í átt að samþættri og samfelldri þjónustu við eldra fólk.

Verkefnastjóri fjölskyldumála í Dalabyggð:

Stofnun Móma teymisins í Dalabyggð færir okkur nær því markmiði sem unnið er að varðandi samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í sveitarfélaginu. Með þverfaglegu teymi er verið að tryggja að veitt sé rétt þjónusta á réttum tíma og útfrá þörfum hvers og eins.

Jóhanna F. Jóhannesdóttir, forstjóri HVE

Samvinna þjónustuaðila í Dalabyggð er lykillinn að farsælli þróun þjónustu fyrir eldra fólk. „Með því að samþætta þjónustuna og byggja hana á samræmdu mati á þjónustuþörf getum við tryggt að einstaklingar fái heildstæða og skilvirka þjónustu.“

Frá vinstri:

Jóna Björg Guðmundsdóttir. Verkefnastjóri fjölskyldumála hjá Dalabyggð, Sigríður Jónsdóttir, verkstjóri heimaþjónustu hjá Dalabyggð, Heiður Haraldsdóttir, iðjuþjálfi hjá SSV, Líf Lárusdóttir, verkefnastjóri hjá SSV og Hulda Gestsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á HVE.

Á myndina vantar Þórunni B. Einarsdóttur yfirhjúkrunarfræðing hjá HVE í Dalabyggð og Kristínu Guðbjörgu Arnardóttur hjúkrunarstjóra Silfurtúns.