Fara beint í efnið

24. ágúst 2026

Möguleikar í umboðsvirkni á Ísland.is

Vissir þú að hægt er að veita öðrum einstaklingi umboð til að sinna þínum málum á Ísland.is, jafnvel án rafrænna skilríkja?

Einstaklingar sem ekki hafa rafræn skilríki geta skráð umboðsmann með því að fylla út eyðublað á pappírsformi. Sá sem fær umboðið getur þá annast ýmis mál á Mínum síðum á Ísland.is með einföldum hætti.

Ferlið er einfalt: fylla þarf út eyðublaðið sem er aðgengilegt hér, fá tvo votta til að staðfesta umsóknina og senda hana svo til sýslumanns í gegnum Ísland.is. Sá sem fær umboðið fær svo tilkynningu í tölvupósti þegar sýslumaður hefur virkjað umboðið, yfirleitt innan tveggja til þriggja daga. Einnig er í boði að skila eyðublaðinu inn á pappírsformi á skrifstofu sýslumanna.

Alltaf er hægt að afturkalla umboðið, bæði í gegnum Mínar síður og í eigin persónu hjá embætti sýslumanns víðs vegar um landið.

Þessi virkni veitir einvörðungu aðgang að stafrænum þjónustum opinberra aðila sem tengst hafa Umboðskerfi Ísland.is en yfirlit yfir þá aðila er hægt að finna undir hnappnum „Aðgangsstýring“ á Mínum síðum.

Þegar hafa rúmlega 500 einstaklingar virkjað slíkt allsherjarumboð á pappír hjá sýslumanni en hægt er að velja hvort umboðið gildi tímabundið eða ekki.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar má finna hér.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.