Fara beint í efnið

19. október 2026

Mögulegt ónæði á lestrarsal

Vegna viðhalds á húsnæði Þjóðskjalasafns geta gestir á lestrarsal átt von á ónæði vegna hávaða á næstu vikum.

Verið er að skipta um glugga á efri hæðum hússins sem hefur í för með sér talsvert rask. Gestum á lestrarsal er bent á að gera ráðstafanir með hliðsjón af þessu, hljóðeinangrandi heyrnartól eða eyrnatappar hafa reynst vel.

Við biðjumst velvirðingar á þessu og vonum að truflanir verði ekki miklar.