Fara beint í efnið

23. október 2023

Móberg 1. árs

Hjúkrunarheimilið Móberg á Selfossi fagnaði 1. árs afmæli þann 19.10 s.l.

móberg 5

Margir góðir gestir fögnuðu með íbúum og kíktu við í kaffi.

Í tilefni dagsins færði Vinafélag hjúkrunardeildanna á Selfossi, Móberg höfðinglega gjöf, glæsilegt píanó og píanóstól sem á eftir að gleðja heimilisfólk Móbergs. 

Esther Óskarsdóttir formaður Vinafélagsins afhenti gjöfina fyrir hönd félagsins og þökkum við þeim hjartanlega fyrir þessa stórkostlegu gjöf.

Fjóla St. Kristinsdóttir, bæjarstjóri Árborg færði einnig heimilinu glæsilegt fjögra binda verk, Saga samvinnufélaga á Suðurlandi eftir Guðjón Friðriksson. Við þökkum Fjólu og bæjarstjórn Árborgar fyrir fallega og góða gjöf.

Móberg 3
móberg 3