6. nóvember 2009
6. nóvember 2009
Þessi frétt er meira en árs gömul
Misheppnuð ránstilraun
Karl á fertugsaldri var handtekinn í verslun í Reykjavík síðdegis í gær. Hann var vopnaður hnífi og ógnaði starfsmanni og viðurkenndi að tilgangur hans hefði verið að ræna peningum. Tveir starfsmenn yfirbuguðu ræningjann og héldu honum föstum þar til lögreglan kom á vettvang. Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.