Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. febrúar 2026

Minni flækjur, meiri stuðningur: Einfaldara umsóknarferli fyrir atvinnuleysisbætur

Í nýrri umsókn um atvinnuleysisbætur sem nú er aðgengileg á Ísland.is er skýr áhersla á að auðvelda fólki sem missir vinnuna að sækja réttindi sín og fá stuðning til að komast aftur út á vinnumarkaðinn.

Mynd/Stjórnarráðið

Umsóknin er unnin í samstarfi Vinnumálastofnunar og Stafræns Íslands en hugbúnaðarteymi Origo og Advania komu að þróun hennar. Markmið verkefnisins er að einfalda ferlið og draga úr álagi á fólk í viðkvæmri stöðu.

Helstu umbætur fyrir notendur:

  • Skýrari leiðsögn 
    Umsóknin er hönnuð sem heildstætt ferli þar sem umsækjandi er leiddur áfram skref fyrir skref. Það dregur úr óvissu og lágmarkar þörfina á að fólk þurfi að leita aðstoðar hjá þjónustuveri. 

  • Stuðningur til að komast aftur út á vinnumarkað 
    Umsóknin snýst ekki aðeins um greiðslur atvinnuleysisbóta. Atvinnuleit er lykilhluti ferlisins og markmiðið er að tengja umsækjendur fyrr við úrræði og stuðning sem getur hjálpað þeim að komast aftur út á vinnumarkaðinn.  

  • Viðeigandi spurningar 
    Spurningar hafa verið einfaldaðar og þær birtast á viðeigandi stað í umsóknarferlinu. Aðeins er spurt um upplýsingar sem tengjast beint stöðu umsækjanda — hvort sem það snýr að réttindum eða stuðningi við atvinnuleit. Þetta sparar tíma og gerir ferlið markvissara. 

  • Kerfið styður við umsækjendur 
    Þar sem hægt er eru upplýsingar sóttar sjálfvirkt úr öðrum opinberum kerfum. Það flýtir fyrir, einfaldar útfyllingu og minnkar líkur á innsláttarvillum sem geta tafið afgreiðslu. 

  • Skýrari skilaboð 
    Texti í umsókninni hefur verið einfaldaður. Réttindi og skyldur eru útskýrð á mannamáli svo auðveldara er að skilja hvers er óskað og hvers vegna. Markmiðið er að umsækjendur geti farið í gegnum ferlið án aðstoðar. 

  • Hægt að vista 
    Nú er hægt að vista umsóknina í miðju ferli, gera hlé og halda áfram síðar án þess að tapa gögnum. Þannig geta umsækjendur unnið í umsókninni á sínum hraða.

„Uppfærða umsóknin er bæði einfaldari og þægilegri fyrir notendur og auðveldar úrvinnslu umsóknanna fyrir okkar starfsfólk. Með því að nýta tæknina og sækja gögn sjálfvirkt og fækka hindrunum getum við betur stutt fólk þar sem það er statt hverju sinni,“ segir Leó Örn Þorleifsson, sviðsstjóri réttindasviðs hjá Vinnumálastofnun.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.