Fara beint í efnið

26. október 2026

Millifærslur nýr greiðslumáti á Ísland.is

Nú er hægt að greiða fyrir umsóknir á Ísland.is með millifærslu beint af bankareikningi. Fram að þessu hefur verið hægt að greiða með debetkorti, kreditkorti og í sumum tilvikum með kröfu í heimabanka.

Þegar valið er að greiða með millifærslu skráir þú inn bankareikninginn sem þú vilt nota. Greiðslubeiðni berst þá í bankaappið þitt í gegnum kerfi samstarfsaðila okkar, Blikk. Þar staðfestir þú greiðsluna og upphæðin færist strax af reikningnum þínum og umsóknin fer beint í afgreiðslu.

Hvaða bankar bjóða millifærslu?

Þú getur greitt með millifærslu af reikningum hjá Landsbankanum, Íslandsbanka, Arion banka og Kviku/Aur. Fleiri bankar munu bætast við á næstunni.

Hvar getur þú notað nýju greiðsluleiðina?

Millifærsla er í boði fyrir fjölda umsókna, meðal annars:

  • sakavottorð

  • vegabréf

  • ökuskírteini

  • eigendaskipti

  • ýmsar leyfisveitingar

Næstu skref

Áfram verður unnið að því að bjóða upp á fjölbreyttar greiðsluleiðir við enn fleiri aðgerðir, til dæmis við greiðslu annarra opinberra gjalda á Mínum síðum á Ísland.is.

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.