Fara beint í efnið

10. nóvember 2022

Mikil ánægja með Ísland.is

Stafræn vegferð og þróun á stafrænum lausnum mælist í takti við vilja og væntingar landsmanna í nýlegri könnun.

anaegja m islandisokt 2022

Við þróun á nýjum vörum og þjónustu er mikilvægt að fylgjast með notandaupplifun. Stafrænt Ísland hefur síðustu misseri unnið að því að bæta upplýsingagjöf og stafræna þjónustu hins opinbera. Ýmsar leiðir eru nýttar til að fylgja því eftir að það sé í raun verið að bæta upplifun.

Nýverið framkvæmdi Gallup netkönnun þar sem notkun og viðhorf til Ísland.is, Stafræns pósthólfs og Minna síðna Ísland.is var kannað.

Heilt yfir mælist þekking, notkun og ánægja mjög hátt í öllum hópum sama hvort horft er til aldurs, búsetu, menntunar eða tekna. Svörin gefa til kynna að stafræn vegferð hins opinbera sé á leið í rétta átt og í takti við vilja og væntingar landsmanna. 

Tæplega 38% landsmanna nota Ísland.is reglulega og rúmlega 48% til viðbótar hafa notað og aðeins rúmlega 6% hafa aldrei heyrt um Ísland.is. Minnstu þekking og notkun á Ísland.is er hjá 65 ára og eldri en þó hafa 72% svarenda nýtt sér vefinn. Í öðrum aldurhópum var notkun á bilinu 87%-94%. Fólk á landsbyggðinni nýtti sér vefinn hvað mest eða um 89% en minnst í Reykjavík eða um 84%.

Sama mynstur var að sjá á Mínum síðum Ísland.is þar sem 86% svarenda hafði nýtt sér þær.

Þekking og notkun á Stafræna pósthólfinu mælist með 54% meðal landsmanna. 65 ára og eldri hafa notað Stafræna pósthólfið hvað minnst, um 30%, en mest mældist notkun hjá 35-44 ára eða 75%.

Heilt yfir var ekki að sjá mikinn mun á notkun og þekkingu á Ísland.is hjá konum og körlum þó mældust konur ívið hærri.

Ánægja með Ísland.is mælist mjög há þar sem 70% svarenda eru ánægð með vefinn, 68% ánægð með Mínar síður og 69% með Stafræna pósthólfið. Innan við 2% þátttakenda reyndust óánægð með vefinn Ísland.is, Mínar síður og Stafræna pósthólfið.

Áfram verður fylgst með þekkingu, notkun og ánægju notanda og niðurstöður nýttar í forgangsröðun stafrænna verkefna.

Könnunin var framkvæmd af Gallup dögana 6. – 18. október 2022 fyrir Stafrænt Ísland. Netkönnun var send til 1697 manns af öllu landinu, 18 ára og eldri, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup