Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. ágúst 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Mikið magn fíkniefna finnst við komu ferjunnar Norrönu til Seyðisfjarðar

Við komu ferjunnar Norrönu til Seyðisfjarðar fimmtudaginn 1. ágúst sl. stöðvuðu tollverðir tvo erlenda karlmenn. Í ljós hefur komið að í vörslum þeirra var mikið magn fíkniefna. Lögreglan á Austurlandi í samvinnu við lögregluna á Höfuðborgarsvæðinu fer nú með rannsókn málsins sem er á frumstigi. Kærðu voru leiddir fyrir Héraðsdóm Austurlands og voru nú fyrir hádegi úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tvær vikur að kröfu lögreglustjóra. Rannsókn málsins er á viðkvæmu stigi og verða ekki gefnar frekari upplýsingar að svo stöddu.