14. mars 2011
14. mars 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Menn sem reyndu innbrot í Hveragerði eru fundnir.
Í morgun leitaði lögreglan á Selfossi til almennings um upplýsingar um gráa pallbifreið sem hefði sést við söluturninn Tíuna í Hveragerði. Ábending kom fljótlega um bifreiðina. Við nánari skoðun kom í ljós að bifreiðinni hefði verið stolið í Reykjavík um helgina og þjófarnir, sem voru tveir, þeir sömu og eyðilögðu hlið við Syðri Brú í Grímsnesi þessa sömu nótt. Þeir hafa viðurkennd að hafa reynt að brjóta upp hurðina í söluturninum í Hveragerði.