5. júní 2013
5. júní 2013
Þessi frétt er meira en árs gömul
Meint þýfi haldlagt af tollgæslunni.
Tollgæslan á Seyðifirði lagði hald á mikið magn af koparplötum og bútum sem átti að flytja úr landi nýverið með Norrænu. Lögreglan hefur fengið málið til afgreiðslu, enda er hér, að öllum líkindum, um þýfi að ræða. Lögreglan biður þá sem telja sig hafa vitneskju um eigendur þessa kopars að hafa samband við lögregluna á Egilsstöðum í s. 4702140.