8. ágúst 2012
8. ágúst 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Með kannabis í fórum sínum
Karlmaður á þrítugsaldri var í fyrradag stöðvaður við hefðbundið eftirlit tollgæslunnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, grunaður um vörslur fíkniefna. Lögreglan á Suðurnesjum tók skýrslu af manninum, sem var Íslendingur að koma frá Danmörku. Hann reyndist vera með lítilræði af kannabis á sér.