21. janúar 2013
21. janúar 2013
Þessi frétt er meira en árs gömul
MDMA, kannabis og sterar fundust við húsleit
MDMA fíkniefni, kannabisefni, sterar, sprautur og lyf fundust við húsleit sem lögreglan á Suðurnesjum gerði í íbúðarhúsnæði í umdæminu. Farið var í húsleitina á föstudagskvöld, að fengnum dómsúrskurði Héraðsdóms Reykjaness. Efnin fundust víðs vegar í íbúðinni. Að auki fannst óopnaður 25 lítra Tuborg Grön bjórkútur. Grunur leikur á að um þýfi sé að ræða og haldlagði lögregla kútinn því ásamt efnunum. Málið er í rannsókn.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.
Ölvaður og réttindalaus ók á steypta girðingu
Ölvaður og réttindalaus ökuþór ók á steypta girðingu í Sandgerði í nótt og hvarf síðan á brott án þess að gera vart við sig. Lögreglan á Suðurnesjum hafði fljótlega upp á bifreiðinni, þar sem hún var enn á sveimi í Sandgerði. Ökumaðurinn var færður á lögreglustöð, þar sem sýnatökur staðfestu að hann hefði neytt áfengis. Hann var ekki sáttur við afskipti lögreglu. Nokkurt tjón varð af ákeyrslunni. Lögregla rannsakar málið.